Karlar vandamál fyrir konur og börn

karlar10-11 apríl verður ráðstefna um þetta mál í Stokkhólmi með mögum íslenskum fyrirlesurum m.a. Braga Skúlasyni sjúkrahúspresti og Ingólfi Gíslasyni hjá Jafnréttisstofu. Tími til kominn að jafnréttisumræðan snúist líka um karla.

Hingað til hafa karlar bara verið vandamál fyrir konur og börn í jafnréttisumræðunni a.m.k. hér í Svíþjóð.

 Sjá heimasíðu ráðstefnunnar:

http://nordicmenshealth.wordpress.com/

http://nordicmenshealth.wordpress.com/

  

Að sjálfsögðu er þörf á stuðningsathvörfum fyrir karla!

Það eru ungir karlar sem verða mest fyrir barðinu á ofbeldi í öllum myndum. Konur lenda oftar í ofbeldi heima fyrir en karlar eru mun oftar fórnarlömb ofbeldis almennt. Í Noregi eru móttökustöðvar fyrir karla í krísu komnar hvað lengst. Þar leita karlar gjarna hjálpar vegna andlegs ofbeldis af hálfu kvenna. Algengasta tegund andlegs ofbeldis sem konur beita gegn körlum er að svipta þá forræði og eðlilegu umgengi við börnin. 

Konur sem beita börnum sínum eins og barefli í skilnaðarmálum eru ein helsta ástæða þess að karlar leita til svona athvarfa.

Á Íslandi eru karlar nærri réttlausir í skilnaðarmálum og alltof algengt að íslenskar konur misnoti lagalega stöðu sína til að koma höggi á föður barnanna. Það er skömm af því!

Slíkt ofbeldi er jafn alvarlegt og það líkamlega ofbeldi sem sumir karlar beita konur inná heimilinu.


mbl.is Karlaathvörf yfirfull í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband