Gegn rasisma í dýraríkinu

Það hlaut að koma að því! Ég tók á móti dreifiblaði frá ungum manni um daginn þar sem kynþáttafordómum í dýraríkinu var harðlega mótmælt. Í lauslegri þýðingu stóð eftirfarandi texti á sneplinum:

dog 2"Í dag eru flestir Svíar sammála um að fordæma kynþáttafordóma gagnvart fólki. Allt tal um hreinræktun kynstofna manna er bannað með lögum. Við krefjumst þess fyrir hönd vina okkar dýranna að það sama verði látið gilda fyrir þau. Við krefjumst þess að sett verði lög sem banna hreinræktun dýra. Það er ósæmandi að mannskepnan taki sér það vald að rækta fram sérstaka eiginleika hjá dýrum og til séu félög fólks kringum t.d. sérstaka hundategundir. Þetta er grófur rasismi."

dog 1Það er nefnilega það! Eiginlega dettur mér helst í hug að þetta hafi verið flugumaður úr herbúðum sænskra rasista sem hafi á þennan hátt verið að krefjast réttar síns að fá að tjá skoðanir sínar um hreinræktun hvíta kynstofnsins. En auðvita getur vel verið að maðurinn hafi verið að meina þetta.

Ég veit varla hvort er verra?


mbl.is Forríkri hundstík hótað lífláti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband