Kynlífsleikfang í leikskóla

whipping

 Ha, ha... góður. En þessi er samt ennþá betri:

Ungur sonur íslenskrar vinkonu minnar í Stokkhólmi fékk sendan íslenskan bolluvönd frá afa og ömmu á Íslandi.

Stoltur strákurinn tók að sjálfsögðu vöndinn með sér í leikskólann daginn eftir. Starfsfólkið, sem hafði aldrei séð bolluvönd, spurði þann stutta hvað þetta væri og til hvers það væri notað.

"Þetta er píska (vöndur)..." svaraði sá litli, ".... sem maður notar til að slá mömmu á rassinn í rúminu."

 

Þökk sé opinskárri starfsstúlku sem spurði mömmuna beint út hvort þetta væri satt, þegar hún sótti strákinn um eftirmiðdaginn, þá fékk vinkona mín möguleika á að útskýra málið. En starfsfólkið hafði trúað því allan daginn að bolluvöndurinn væri kynlífsleikfang.

En talandi um þessa frétt sem ég tengdi við bloggið: Er það ekki spurning um kynhneigð viðkomandi hvort rasskinn teljist til kynfæra?

Bolla, bolla!


mbl.is ABC gert að greiða háa nektarsekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband