Já hann er sár hann pendúll...

Það er með pyntingar eins og pedófílí. Það er ekki alltaf auðvelt að draga mörkin. Hvenær eru nærgöngular yfirheyrslur pyntingar og hvenær er barnið nægjanlega gamalt til að kynlíf sé ekki pedófílí? Ekki aldeilis einfalt mál:

Ped1Ég er nú orðin svo gömul að muna þá tíma (á árunum kringum 1970) þegar það var sterkt í umræðunni hér í Sverige (ég bjó þá í Lundi) og Danmörk að pedófílí væri eðlilegt og ekkert að því ef barnið væri með á nótunum. Þetta er alveg satt! Það voru meira að segja til samtök pedófíla. Það eru mörg þekkt dæmi um valdamikla pedófíla samkvæmt okkar skilgreiningu á pedófílí. Sjálfur Múhameð spámaður giftist "konu" sem var 13 ára.

torture

Það var sjálfsagt að rass-skella börn þegar ég var lítil. Í dag eru það barnamisþyrmingar. Jón Hreggviðsson var hýddur fyrir að stela snæri. Í dag eru það pyntingar að hýða fólk sem getur haft mikilvægar upplýsingar um væntanleg hryðjuverk í stíl með 9-11.

pendullÞað verður spennandi að sjá hvenær hann (pendúllinn) byrjar að sveiflast aftur til baka og hvað það verður sem setur hann af stað í hina áttina.
mbl.is Eru pyntingar góð hugmynd?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband